• English
  • Íslenska
  • Hrauneyjar
  • Hotel Highland
  • Hotel Skogar
  • Hotel Ranga
  • All Season Hotels
  • Heim
  • Hótel upplýsingar
  • Gisting
  • Veitingar
  • Fundir og Ráðstefnur
  • Afþreying
  • Áhugaverðir staðir
  • Landakort
  • Myndasöfn
  • Hafa samband
  • To pass validation of validator.w3.org..in case ther's no sub navigation

Book Now - Select Hotel Here

Hotel Rangá
Hotel Skógar
Hotel Highland
Hálendismiðstöðin Hrauneyjar
  • Velkomin til okkar
  • Gjafabréf
  • Sértilboð
  • Fréttir
  • Atburðir
  • 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
  • 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
  • 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
  • 29.09.2011 Blog and Facebook
  • 07.06.2011 Hotel Highland and Fossbúð
  • Meira..

    Mailinglist

    Join our mailing list and recieve great offers Sign up
    • You are here:
    • allseasonhotels.is
    • Is
    • Áhugaverðir staðir

    Kynnist suðurlandi
    Jöklar, hverir, eldfjöll, fjöll, fossar, svartar strendur, klettar í sjó fram, heitar lindir

    Áhugaverðir staðir : Jökulsárlón, Breiðamerkursandi

    Jökulsá sem fellur undan Breiðamerkurjökli, því sem næst á miðjum Breiðamerkursandi, og er, þótt hún sé ekki nema á að giska 1500 m löng, í röð vatnsmestu fljóta á landinu. Er meðalrennsli hennar 250-300 m³/s. Um síðustu aldamót var Jökulsá enn styttri, þá var hún aðeins um 1000 m. Áður féll hún beint undan jökli í sjó fram en á seinni árum hefur orðið stórfelld breyting á þessu svæði vegna hlýnandi loftslags. Hefur myndast stórt stöðuvatn milli Breiðamerkurjökuls og jökulöldu, að mestu eftir 1950. Það er hyldjúpt, sem næst 100 m. Er vatnsbotninn langt fyrir neðan yfirborð sjávar og um flóð fellur sjór upp í það. Stórir ísjakar, sem brotnað hafa úr jöklinum, fljóta um vatnið.

    Jökulsá var í röð skæðustu vatnsfalla á Suðurlandi. Hefur margt manna drukknað við að reyna að komast yfir hana. Áður var oft farið fyrir upptök árinnar á jökli ef hún reyndist óreið. Var þá þrætt á milli jökulsprungnanna um stórhættulega leið og gat ferðin tekið nokkrar klukkustundir, lengst 14 klukkustundir svo vitað sé. Miklu styttra var að fara á undirvarpi, sléttri íshellu rétt ofan við útfall árinnar úr jöklinum, sem stundum var fært. Um 1870 var hafist handa um að velja og merkja leið yfir jökulinn og var hún stikuð á hverju ári fram til 1941. Árið 1932 var tekið að ferja yfir Jökulsá en á árunum 1966-1967 var hún brúuð. Brúin er 108 m löng.

    Heimild: Íslandshandbókin útgáfa 1.0. Námsgagnastofnun 1995.


    Til baka

    Prenta | Senda á vin |
    • Allseason Hótel
    • Suðurlandsvegur
    • 851 Hella
    • Ísland
    • Sími: (354) 487 5700
    • Fax: (354) 487 5701
    • E-mail: hotelranga@hotelranga.is