• English
  • Íslenska
  • Hrauneyjar
  • Hotel Highland
  • Hotel Skogar
  • Hotel Ranga
  • All Season Hotels
  • Heim
  • Hótel upplýsingar
  • Gisting
  • Veitingar
  • Fundir og Ráðstefnur
  • Afþreying
  • Áhugaverðir staðir
  • Landakort
  • Myndasöfn
  • Hafa samband
  • To pass validation of validator.w3.org..in case ther's no sub navigation

Book Now - Select Hotel Here

Hotel Rangá
Hotel Skógar
Hotel Highland
Hálendismiðstöðin Hrauneyjar
  • Velkomin til okkar
  • Gjafabréf
  • Sértilboð
  • Fréttir
  • Atburðir
  • 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
  • 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
  • 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
  • 29.09.2011 Blog and Facebook
  • 07.06.2011 Hotel Highland and Fossbúð
  • Meira..

    Mailinglist

    Join our mailing list and recieve great offers Sign up
    • You are here:
    • allseasonhotels.is
    • Is
    • Áhugaverðir staðir

    Kynnist suðurlandi
    Jöklar, hverir, eldfjöll, fjöll, fossar, svartar strendur, klettar í sjó fram, heitar lindir

    Áhugaverðir staðir : Geysir í Haukadal

    Einn allra vinsælasti ferðamannastaður landsins og ein af okkar mestu nátúrugersemum er hverinn Geysir í Haukadal. Geysir er á hinum svokallaða Gullna hring "Golden Circle Tour".
    Hin seinni ár hefur dregið mjög úr gosvirkni hans og hefur þurft að koma gosunum af stað með því að setja sápu í hverinn.
    Það er ekki vitað með vissu hvenær gos hófust í Geysi. Það er talið að hann hafi vaknað til lífs í lok 13. aldar eftir að jarðskjálftahrina gekk yfir Suðurland, samhliða miklu eldgosi eða eldvirkni í Heklu. Hitt er aftur á móti vitað að hann gaus reglulega á um það bil þriggja stunda fresti allt þar til í byrjun 19. aldar og einhver virkni var allt fram undir 1916, að hann hætti algjörlega að gjósa. Ekkert er vitað um ástæður þess, en ýmsar getgátur eru á lofti.

    Á meðan Geysir var virkur spjó hann sjóðheitu vatni og gufu allt að 60 -70 metra í loft upp, stóðu þessi gos í nokkrar mínútur og voru mjög tilkomumiklil. Op Geysis er 18 metra vítt og hann er 20 metra djúpur. Ein ástæða þess að talið er að Geysir sé hættur að gjósa, er sú að gestir hafa í áraraðir kastað í hann grjóti og öðru lauslegu drasli. En þetta er ekki eina ástæðan, langt í frá.

    Geysir er á meðal þekktustu goshvera jarðarinnar, jafnast þar á við hverina í Yellowstone Park og á Nýja Sjálandi. Enska orðið "geyser" er dregið af íslenska orðinu "geysir" . Þó að Geysir sjálfur sé meira og minna óvirkur í dag, þá eru aðrir minni hverir á Geysisvæðinu, sem eru vel virkir. Strokkur er vel þekktur en hann gýs á um 10 mínútna fresti og þó hann sé ekki jafn tilkomumikill og Geysir, þá er hann mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Hann gýs sjóðheitu vatni og gufu allt að 30 metrum.
    Allt Geysissvæðið er allt eitt vellandi og sjóðandi hverasvæði, litirnir á grjótinu eru fjölmargir líkt og á öðrum háhitasvæðum. Um svæðið renna heitir hveralækir og gufa stígur upp úr jörðinni og það kraumar í hveraaugum sem opin eru, jafnframt því ef lagt er við hlustir þá heyrist niður í jörðinni og hún titrar undan þeim þrýsingi sem niðri fyrir býr. Laugafjall heitir lágt fjall vestan við hverasvæðið, ofan af því er gott útsýni yfir Geysissvæðið.

    Christian IX konungur af Danmörku heimsótti Geysissvæðið árið 1874 Við rætur fjallsins eru steinar sem kallaðir eru Konungssteinar, vegna þess að konungi voru þar fæð egg sem soðin höfðu verið í heitum hver.


    Til baka

    Prenta | Senda á vin |
    • Allseason Hótel
    • Suðurlandsvegur
    • 851 Hella
    • Ísland
    • Sími: (354) 487 5700
    • Fax: (354) 487 5701
    • E-mail: hotelranga@hotelranga.is