Book Now - Select Hotel Here
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Check out our Blog and Facebook page
- 29.09.2011 Blog and Facebook
- 07.06.2011 Hotel Highland and Fossbúð
- Meira..
Kynnist suðurlandi
Jöklar, hverir, eldfjöll, fjöll, fossar, svartar strendur, klettar í sjó fram, heitar lindir
Afþreying : Stangaveiði á Holtamannaafrétti
Stangaveiði á Holtamannaafrétti
Veiðileyfi í eftirfarandi vötn eru öll seld í Hrauneyjum.Sama fyrirkomulag verður í ár eins og síðustu ár.
Verð per stöng/per dag er 4,900,- kr.
Keypt veiðileyfi gildir í öll 3 neðangreind vötn svo það má flakka á milli vatna á sama leyfinu.
Mánudaga til Fimmtudaga eru 2 stangir fyrir 1, tilboð á veiðileyfum.
Fellsenda vatn er lítið vatn rétt við Vatnsfellsvirkjun.
Oft gefur það vatn góða í veiði og væna urriða. Algeng stærð á fiski um 2-5 pund,
En einnig er hægt að setja í vænni fiska af eldri kynslóðinni.
Leyfilegt agn, fluga, spúnn, maðkur og makríll.
Þórisvatn sem margir þekkja er þekkt fyrir mikið magn af fiski en þar er eingöngu Urriði í og er algengasta stærðin um 1.5-3 pund.
Mest er veitt í austurbotni en einnig er veiði við Grasatanga þar sem vatnið liggur við
Veginn á sprengisandi ekki langt frá Vatnsfellsvirkjun.
Þessi veiðistaður er mjög aðgengilegur á öllum bílum.
Leyfilegt agn, fluga, spúnn, maðkur og makríll.
Kvíslarveitur eru stórt svæði á Sprengisandsleið og er mikið af fiski þar.
Þar sem svæðið er stórt er oft erfitt að finna sér góðann veiðistað en það er fiskur um allt svæðið, vinsælast er þó alltaf að veiða þar sem tæru litlu árnar og lækirnir renna útí litinn eins og við Svartá sem keyrt er yfir á Sprengisandsleið.
Einnig er oft mikið veitt upp undir stíflu ofarlega á svæðinu.
Leyfilegt agn, fluga, spúnn, maðkur og makríll.
Mikilvægt er að skila inn aflaskýrslu eftir veiðina.
Inni í afgreiðslu í Hrauneyjum eru veiðibækur sem fylla þarf út fyrir hvert vatn.
Rétt er að minna á að ganga alltaf vel um hálendið og skilja ekki rusl og veiðarfæri eftir um allt eins og mikið hefur verið um síðustu ár.
Með ósk um góða veiði og skemmtun í sumar.
Leigutakar.






